Færslur: 2007 Maí
12.05.2007 11:02
Hvernig er það, er kominn tími á blogg?
Já það er spurningin, hvað finnst ykkur? Maður er farin að lesa á öðrum síðum hvað maður sé lélegur bloggari, reyndar er þar vísað í hinn helminginn af mér en er þá nokkuð annað en að rita hérna nokkrar línur. Maður einhvern veginn miklar þetta svo fyrir sér þ.e.a.s. æi það tekur svo langan tíma að blogga en maður þarf svo sem ekki að skrifa neitt mikið. Ég hef allavega tekið eftir því að fólk er að kíkja á síðuna þannig að ég ætla að athuga hvort einhver leggji inn koment hér og eftir! :)
Það er þá komið að kosningum eina ferðina enn og ekki er ég neitt ýkja spennt. Sko það er ekki málið að ég hafi ekki alveg einhverjar skoðanir á því hverjir eru að stjórna í landinu heldur nenni ég bara ekki að leggjast í málefnin sem að þau eru að bjóða fram. Ég hugsa reyndar á ári hverju að ég ætti nú að leggjast yfir málefnin og kjósa af einhverju viti og einhverri samfæringu en alltaf renn ég á rassinn með það og enda á því að á kosningadaginn hef ég ekki hugmynd um hvaða flokk ég á að kjósa. Hvað finnst fólki að maður eigi að gera í svoleiðis stöðu?
nr.1 á maður að fara á kjörstað og skila auðu?
nr.2 á maður að fara á kjörstað og gera ullendullendoff?
nr.3 á maður ekki að mæta á kjörstað?
nr.4. á maður að kjósa þann flokk sem manni fannst auglýsingarnar flottastar hjá?
svona gæti ég svo sem áfram talið en hvað finnst ykkur?
Þetta árið hef ég reyndar ástæðu til að vera ekki neitt rosalega mikið inn í þessum kosningamálum. Ég hef haft nóg á minni könnu þessa daganna og síðustu mánuði eins og flestir vita. Næsta mál á dagskrá er reyndar Ameríkuferð en við þurfum að fara þangað, nánar tiltekið til Boston, með hann Brynjar í hjartaaðgerð. Ég verð að viðurkenna það að það leggst ekki neitt rosalega vel í mig! en samt veit ég að honum á eftir að líða betur á eftir og í þessa hugsun held ég. Mamma og pabbi ætla reyndar að koma með okkur út og það er alveg æðislegt og alveg nauðsynlegt að hafa auka stuðning þó svo að við höfum auðvitað hvort annað. Við höfum ekki enn fengið neina dagsetningu á aðgerðina en erum bara að bíða óþolinmóð eftir henni, það er eitthvað svo erfitt að vera svona í lausu lofti með þetta. Erfitt að plana eins og skírn og hvað maður ætlar að gera í mánuðnum af því að við vitum ekkert hvort það verði eftir viku eða tvær eða mánuð eða hvað! Maður verður bara að reyna að leiða hugann að einhverju öðru en læknirinn hringir í okkur um leið og hann fær tölvupóst frá spítalanum í Boston.
Að öðru þá eiga tveir meðlimir stórfjölskyldunnar afmæli og óska ég þeim innilega til hamingju með daginn en það er hún Díana tengdó og hann Hemmi mágur en aldurinn verður ekkert tekinn fram þar sem að þau verða ávallt bara eins gömul og þeim finnst þau vera!
Njótið dagsins þið tvö!!!
En þá verð ég að fara að sinna litla drengnum sem á að fá að borða núna. Eigið góðan dag og góða helgi...þar til næst!
Elísa

Njótið dagsins þið tvö!!! En þá verð ég að fara að sinna litla drengnum sem á að fá að borða núna. Eigið góðan dag og góða helgi...þar til næst!

Elísa
- 1
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 3
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 32116
Samtals gestir: 15459
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:53:01